Friday, December 5, 2008

fyllist hugur minn af svínum

björn pálmi er ekki búinn að svara hvort hann ætli að koma á tónleikana mína.
ég veit heldur ekkert hver hann er eða hver bauð honum.
björn ef þú ert að lesa þetta þá ertu velkominn.
kannski við gætum bara orðið vinir.

annars hef ég ákveðið að stunda aðeins leiki á facebook undir áhrifum áfengis.
fékk nýtt high score í geo challenge áðan. á langt í 27 þúsundin hans snorra guð blessi hann.

ekki það að ég stundi leiki á facebook ónei

annars þá átti ég fyndna bílferð áðan með sjálfri mér þar sem ég ók úr mosfellsbæ í garðabæ með fullan bíl af lömpum og söng hástöfum með hallærislegu jólalögunum sem komu í útvarpinu. soldið eins og jólasveinninn. en vandræðalegt.

framundan: snúra í skallen frá 15 des til eilífðar


halelúja


-styðjum íslenskt